Þegar ég sat úti í bíl áðan heyrði ég skemmtilega frétt. Í Póllandi geta menn keypt sér ömmu. Þannig geta foreldrar keypt ömmu fyrir börnin sín til að gera hitt og þetta með þeim. Þetta þýðir að væntanlega er einhver að selja ömmur. Ég veit um einstaklinga hérna sem væru alveg til í að selja ömmu sína ef markaður fyrir slíkt væri fyrir hendi.
Þegar maður lærir lögfræði kemst maður ekki hjá því að tengja efnið við það sem gerist í lífinu. Þannig pælir maður oft í samspili siðferðis og laga og stöðu siðferðis í nútímasamfélagi. Siðferði er hugtak sem mér persónulega finnst algerlega hverfandi en ég bind vonir við að þegar greiðist úr málum hérna, og mönnum verður refsað fyrir hið ólöglega og siðlausa, þá fari menn að breyta til betri vegar.
Siðferði tengist óhjákvæmilega trúnni og er í raun það eina góða sem trú hefur fram að færa að mínu viti. Þannig er börnum kennt að ljúga hvorki né stela þó að sumir læri það seinna og verr en aðrir. Þá eru til tregir einstaklingar sem læra þetta aldrei. Sama á við um svik og annað.
Í mínu lífi er mikið af siðlausu liði sem ég reyni almennt að forðast. Fólk sem iðulega veður áfram af græðgi og missir sjónar á öllum góðum gildum. Þannig veður það yfir fólk og hikar ekki við að svíkja. Ég er þeim kostum gæddur að ég á auðvelt með að sniðganga svona. Líklega er það þrjóskan sem ég erfði frá afa og pabba. Þessi þrjóska verður minni með aldrinum.
Það fólk sem svona fer fram hefur ekki lært þau góðu gildi sem það átti að læra í sinni æsku. Það er haldið siðblindu. Að fremja siðlaust athæfi einsog að stela er ekki siðblinda ef maður lærir að þetta er rangt og tekur fordæmingu, fólks í kringum sig , það inná sig, að maður breytir hegðun sinni og fer inn á rétta braut. Þeir sem það ekki gera eru siðblindir. Það þykir mér mest miður að vita af þeim einstaklingum úti um allt sem ekkert bítur á. Þeir breyta aldrei sinni röngu hegðun og draga iðulega með sér sakleysingja til að svíkja.
Þannig að mórallinn er einfaldlega þessi:
Ef þú hefur íhugað að selja ömmu þína þá þarftu að hugsa þinn gang. Sértu nú þegar búinn að því þá þarftu að finna stíginn aftur því þú ert gjörsamlega týndur.